Sport

Sjáðu fimm ótrúlegustu tennisskotin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Roger Federer í eldlínunni.
Roger Federer í eldlínunni. vísir/getty
Vefsíðan tennisworldusa.org hefur tekið saman fimm flottustu tennisskotin í gegnum tíðina. Mörg þau eru mögnuð og ótrúlegt skot Federer var valið það besta.

5) Grigor Dimitrov

Magnað skot frá Búlgaranum Grigor Dimitrov í Stokkhólmi. Mótherji hans hrósar honum einnig fyrir magnað skot.

4) Pete Sampras

Svokölluð „troðsluskot" Pete Sampras hefur verið hans aðalsmerki í gegnum tíðina.

3) Rafael Nadal

„Banana-skotið" hans Nadal gegn Michael Berrer í Doha á þessu ári.

2) Gael Monfils

Eitt af flottustu skotunum frá Gael Monfils gegn Gonzales á opna breska árið 2014.

1) Roger Federer

Besta skotið getur einungis tilheyrt svissneska meistaranum Roger Federer. Ótrúlegt skot hans gegn Novak Djokovic á opna breska árið 2009.

Fimmta sætið til Dimitrov: 'Troðsluskot' Sampras: 'Banana-skot' Nadal: Annað sætið hreppir Monfils: Ótrúlegt skot Federer:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×