Menning

Innlegg í baráttuna gegn heimilisofbeldi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Jón Yngvi Jóhannesson afhenti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.
Jón Yngvi Jóhannesson afhenti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. Vísir/Valli
„Við sem að bókinni stöndum erum afskaplega ánægðar með viðurkenninguna. Þá fær málefnið enn meiri athygli því bókin er innlegg í baráttuna gegn heimilisofbeldi,“ segir Guðrún Kristinsdóttir prófessor, sem í gær tók við viðurkenningu Hagþenkis 2014 fyrir ritstjórn bókarinnar Ofbeldi á heimili – Með augum barna.

Aðrir höfundar eru Ingibjörg H. Harðardóttir, Margrét Ólafsdóttir, Margrét Sveinsdóttir, Nanna Þ. Andrésdóttir og Steinunn Gestsdóttir.

Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna.

Höfundarnir tókust meðal annars á við það erfiða verkefni að ræða við óhörðnuð ungmenni um hið viðkvæma málefni sem heimilisofbeldi er.

Í ályktunarorðum Viðurkenningarráðs segir meðal annars:

Merkilegt brautryðjandaverk sem á ríkt erindi við kennara, foreldra og alla sem láta sér annt um börn og velferð þeirra.



 ... Hvar sem drepið er niður í ritinu gætir þess viðhorfs að börn og unglingar séu samfélagslegir borgarar og gerendur í eigin lífi. Að börn séu ekki fórnarlömb sem beri að vorkenna heldur ungt fólk sem sýni af sér seiglu við að lifa af í vondum aðstæðum og verðskuldi að á þau sé hlustað. Þau búi yfir visku og þekkingu sem vert sé að leita eftir og taka mark á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.