Menning

Ég held mínu striki

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bautinn er kunnuglegt kennileiti í miðbæ Akureyrar.
Bautinn er kunnuglegt kennileiti í miðbæ Akureyrar.
„Mér finnst tilgangslaust að setja á langa ræðu eða skýringar á þeim verkum sem ég sýni hverju sinni. Málverkið lýtur sínum lögmálum og fer sínu fram hvað sem hver segir. Ég held bara mínu striki,“ segir listamaðurinn Kristinn G. Jóhannsson sem opnar sýninguna Senn er sólarlag í Mjólkurbúðinni við Kaupvangsstræti í dag, laugardag, klukkan 14. Kristinn hefur sýnt í Mjólkurbúðinni á sama árstíma undanfarin ár og telur sýninguna nú í raun framhald þess sem hann hefur áður verið með þar. „Ég hef verið að mála og teikna Brekkurnar og speglun þeirra í Pollinum í mörg ár og er enn við sama heygarðshornið,“ segir hann.

Kristinn G. jóhannsson
Sýningin er opin tvær næstu helgar klukkan 14 til 18 og henni lýkur sunnudaginn 25. janúar.

Kristinn efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri árið 1954 . Hann sýndi fyrst í Reykjavík árið 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum.

Hann hefur síðan sýnt oft og víða bæði hér á landi og erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.