Lífið

Styrktarsýning fyrir Heiðu Hannesar í dag

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Heiða Hannesdóttir
Heiða Hannesdóttir Vísir
,,Við erum virkilega þakklát Senu fyrir þessa ómetanlegu aðstoð að fá að halda bíósýningu sem rennur algjörlega óskert í styrktarsjóðinn," segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, vinkona Bjarnheiðar Hannesdóttur, eða Heiðu, sem eins og þekkt er fékk hjartaáfall af völdum kalíumskorts vegna átröskunar. Í dag er Heiða bundin við hjólastól og getur lítið sem ekkert tjáð sig.

í dag klukkan 17:15 verður sérstök styrktarsýning fyrir Heiðu á fjölskyldumyndinni Annie. Allur ágóði af sýningunni rennur í styrktarsjóð Heiðu.



,,Draumur hennar er að komast út í stofnfrumumeðferð eftir að við kynntumst íslenskri stúlku sem var með sambærilegan heilaskaða og Heiða sem hefur farið í 6 stofnfrumumeðferð til Indlands og náð ótrúlegum bata í kjölfarið. Heiða gerir sér alveg fulla grein fyrir því að þessu fylgir áhætta og eins er ekki víst að þetta hjálpi en þetta gefur henni von og vilja til að halda áfram og gefast ekki upp. Það er sú von sem við byggjum þessa söfnun á,“ segir Sigrún, en Heiða stefnir á að fara út í fyrstu meðferð um miðjan apríl. 



,,Við erum virkilega þakklát Senu fyrir þessa ómetanlegu aðstoð að fá að halda bíósýningu sem rennur algjörlega óskert í styrktarsjóðinn. Sveppi, Pétur og Gói koma og spjalla við gesti og gangandi í hléi og verður hægt að fá áritun frá strákunum, segir hún.

„Að auki fær yngri kynslóðin pakka við hurð á meðan birgðir endast en Nettó voru svo yndislegir að styrkja okkur með gjafirnar. Við erum stútfull af þakklæti því aðstoð sem þessi er sko alls ekki sjálfsögð og að auki langar mig að koma á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra ótrúlega hópi kvenna sem standa að þessum styrktarsjóði með okkur því án þeirra þrotlausu vinnu væri þetta ekki gerlegt. Team Heiða er algjörlega magnaður hópur,“ segir Sigrún Lilja.

Fyrir þá sem vilja fara í bíó og styrkja Heiðu um leið við að fá draum sinn uppfylltan geta keypt miða hér en einnig verða miðar seldir við hurð á meðan birgðir endast.

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér










Fleiri fréttir

Sjá meira


×