Lífið

Mið-Ísland kveikti ástarbál

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mið Ísland
Mið Ísland vísir/arnþór
Grínhópurinn Mið-Ísland leysti par út með gjöfum á sýningu í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardagskvöld. Parið var að halda upp á að ár var liðið frá því að það fór á sitt fyrsta stefnumót, en þá fór það einmitt líka á sýningu hjá Mið-Íslandi.

„Þetta hitti á nákvæmlega sömu dagsetningu, 21. febrúar, og var ótrúlega gaman,“ segir Björn Bragi Arnarson grínisti. Parið fékk rauðvínsflösku og súkkulaði í tilefni af tímamótunum.

„Við viljum meina að ferð á sýningu hjá okkur sé hið fullkomna stefnumót. Fólk er svo aðlaðandi þegar það hlær og hefur gaman.“ Pör sem vilja sjá grínistana á sviði á stefnumóti þurfa ekki að örvænta því hópurinn var að bæta við sýningum í marsmánuði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×