Erlent

Skaut sjálfan sig til bana fyrir slysni á afmælisdeginum

Atli Ísleifsson skrifar
Joseph Perez var undir áhrifum áfengis þegar slysið varð.
Joseph Perez var undir áhrifum áfengis þegar slysið varð. Vísir/Getty
Karlmaður í Texas hefur verið úrskurðaður látinn eftir að hafa fyrir slysni skotið sjálfan sig til bana þegar hann var að halda upp á 21 árs afmæli sitt.

Melinda Gutierrez, talsmaður lögreglu, segir að Joseph Perez hafi verið úrskurðaður látinn snemma í morgun eftir að hafa verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á fimmtudag.

Í frétt Guardian segir að Perez hafi verið að halda upp á 21 árs afmælisdaginn sitt á fimmtudag þegar hann sótti skammbyssu og byrjaði að skjóta. Fjölskyldumeðlimir hafi síðan tekið byssuna af honum, en hann hafi síðar komist aftur yfir hana og þá skotið sjálfan sig fyrir slysni.

Gutierrez segir að líklegt sé talið að Perez hafi verið undir áhrifum áfengis þegar slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×