Lífið

Límdi kærasta sinn nakinn við stól - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Erik virtist sárkvalinn á stólnum.
Erik virtist sárkvalinn á stólnum.
Dominika Petrinova notaði vax til að festa kynfæri kærasta síns, Erik, við stól. Hún sat fyrir honum þegar hann kom úr sturtu og sagðist ætla að gefa honum óvæntan glaðning þar sem hann átti nú afmæli daginn áður. Hún batt fyrir augu hans og lét hann setjast á stól þar sem hún hafði komið vaxinu fyrir.

Hún birti myndband af hrekk sínum á netinu.

Dominika og Erik eru meðlimir í Youtube hópi sem hrekkja hvort annað reglulega og birta myndbönd af hrekkjunum á netinu. Með hrekknum var Dominika að hefna sín á Erik sínum, sem þóttist eitt sinn hafa sett hund hennar í þvottavélina. Þann hrekk má einnig sjá hér að neðan.

Í samtali við Daily Mail segir Dominika að hún hafi verið miður sín eftir hrekk Erik með þvottavélina. 

„Hann sagðist sjá eftir þessu, en það virðist ekki hafa verið satt þar sem hann birti hrekkinn á netinu. Ég er nokkuð viss um að hann sjái eftir þessu núna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×