Lífið

Pink svarar nettröllum fullum hálsi: „Ég hef engar áhyggjur af mér“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Pink á hátíðinni ásamt eiginmanni sínum, Carey Hart.
Pink á hátíðinni ásamt eiginmanni sínum, Carey Hart. vísir/getty
Bandaríska söngkonan Pink er þekkt fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. Um helgina mætti hún á hátíð til styrktar krabbameinsveikra og myndir frá því rötuðu á vefinn. Líkt og við vitum öll er yfirleitt misjafn sauður í mörgu fé og einhverjir þurftu endilega að segja skoðun sína á útliti hennar. Kjóllinn þótti ljótur og hún of feit. Pink ákvað að svara fyrir sig fullum hálsi á Twitter.

„Ég sé að einhver ykkar hafa áhyggjur af þyngd minni miðað við athugasemdir ykkar við myndir af mér frá styrktarkvöldinu í gær,“ skrifar hún á Twitter. „Því miður virðist þyngd mín vera ykkur mikilvægari en nærvera mín á kvöldinu sjálfu.“

Hún heldur áfram og segir að þó kjóllinn hafi ekki litið jafn vel út og fyrir framan spegilinn heima þá hafi henni fundist hún vera mjög falleg. „Hafið ekki áhyggjur af mér. Ég hef ekki áhyggjur af mér og ég hef heldur ekki áhyggjur af ykkur. Mér líður vel og ég er fullkomlega ánægð með mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×