Erlent

Flaug frá Eþíópíu til Svíþjóðar í farangursrýminu

Atli Ísleifsson skrifar
Vél Ethopian Airlines. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Vél Ethopian Airlines. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Starfsmenn á Arlanda-flugvelli í Svíþjóð fundu í morgun mann í farangursrými vélar sem var nýlent eftir flug frá Eþíópíu.

Ekki er ljóst hvernig manninum tókst að komast um borð vélina sem flýgur undir merkjum Ethiopian Airlines. Lögregla ræðir nú við manninn en líðan hans er eftir atvikum góð.

„Svo virðist sem manninum líði vel. Ég myndi halda að það væri of kalt í farangursrýminu,“ segir Stefan Färdigs, lögregluvarðstjóri á Arlanda, í samtali við SVT.

Að sögn lögreglu er maðurinn enn sem komið er ekki grunaður um að hafa gerst brotlegur við lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×