Alfreð ónotaður varamaður í áttunda sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2015 15:05 Alfreð Finnbogason. Vísir/EPA
Alfreð Finnbogason kom ekki við sögu þegar Olympiacos vann sinn fjórtánda sigur í röð í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Olympiacos vann þá 1-0 heimasigur á Panaitolikos og er því með 42 stig og markatöluna 39-8 eftir fjórtán fyrstu umferðirnar. Alfreð Finnbogason sat allan tímann á bekknum þrátt fyrir að hafa skorað í síðasta deildarleik liðsins um síðustu helgi. Alfreð fékk aðeins fjórar síðustu mínúturnar í vikunni þegar Olympiacos tapaði fyrir Arsenal og datt út úr Meistaradeildinni. Það var Argentínumaðurinn Alejandro Domínguez sem skoraði eina mark Olympiacos í dag á fimmtu mínútu í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Domínguez fékk tækifæri til að koma liðinu í 2-0 á 55. mínútu en klikkaði þá á vítaspyrnu. Lið Olympiacos lék manni fleiri allan seinni hálfleikinn eftir að Dimitris Kyriakidis, markvörður Panaitolikos, fékk rauða spjaldið á 45. mínútu. Marco Silva, þjálfari Olympiacos, notaði bara tvær skiptingar í leiknum en hann sendi inná brasilíska framherjann Sebá á 74. mínútu og kólumbíska framherjann Felipe Pardo á 75. mínútu. Alfreð sat aftur á móti allan tímann á bekknum en þetta var í fimmta sinn í deildinni og í áttunda sinn í öllum keppnum þar sem Alfreð er ónotaður varamaður á tímabilinu. Alfreð hefur auk þess tvisvar verið fyrir utan hóp. Alfreð hefur samtals spilað í 239 mínútur í grísku deildinni í fyrstu fjórtán umferðunum eða aðeins 19 prósent leiktímans.
Fótbolti Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Fleiri fréttir Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Sjá meira