Erlent

Funda stíft um flóttamannavandann í Evrópu

Birgir Olgeirsson skrifar
Talið er að níu þúsund flóttamenn hafi komið til Grikklands á hverjum degi í síðustu viku.
Talið er að níu þúsund flóttamenn hafi komið til Grikklands á hverjum degi í síðustu viku. Vísir/Epa
Leiðtogar nokkurra Evrópuríkja hafa fundað stíft í Brussel til að finna lausn á flóttamannavandanum á Balkanskaganum. Leiðtogarnir sendu frá sér drög að ályktun þar sem kallað er eftir því að Evrópuríki hætti að hleypa flóttamönnum í gegnum landamæri sín án leyfis nágrannaríkja.

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC segir MiroCerar, forsætisráðherra Slóveníu, hafa varað við því að Evrópusambandið muni liðast í sundur ef ekki verður tekið á þessum vanda.

Kollegi hans í Serbíu, AleksandarVucic,  sagði þó að ekki væru miklar líkur á einhverskonar samkomulagi af þessum fundi sem gæti leyst vandann.

Tíu Evrópusambandsríki og þrjú ríki utan Evrópusambandsins taka þátt í þessum viðræðum en margir undrast fjarveru Tyrklands. Í drögunum að ályktuninni er kallað eftir jöfnuð og skipulögðu flæði flóttamanna í gegnum Evrópu. Þar er einnig lagt til að efla eftirlit með landamærum Grikklands og senda 400 landamæraverði til Slóveníu.

Fréttastofa BBC segir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, hafa sagt að flóttamannavandinn verði ekki leystur án aðkomu Tyrklands.

Yfirvöld í Ungverjalandi og Króatíu lokuðu landamærum sínum í síðustu viku. Það varð þess valdandi að 58 þúsund flóttamenn komu til Slóveníu vikunni sem leið.

Slóvenskir ráðamenn hafa sakað yfirvöld í Króatíu um að hafa rekið þúsund flóttamanna að landamærum Slóveníu. Króatar segjast ekki hafa annarrar kosta völ því Slóvenar tækju á móti mun færri flóttamönnum en aðrar þjóðir.

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jean-ClaudeJuncker, boðaði til fundarins í Brussel. Sagði Juncker að ef ekki næst samkomulag setji það líf margra flóttamanna í töluverða hættu.

Óttast margir að yfirvöld í Þýskalandi og Austurríki loki landamærum sínum og hefur það leitt til hótana frá yfirvöldum í Búlgaríu, Rúmeníu og Serbíu um að gera það.

Talið er að níu þúsund flóttamenn hafi komið til Grikklands á hverjum degi í síðustu viku. Flestir þeirra eru sagðir vilja komast til Þýskalands.

Þjóðverjar segjast eiga von á 800 þúsund hælisleitendum á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×