Fótbolti

Sara Björk lék allan leikinn í sigri Rosengård

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sara Björk er í stóru hlutverki hjá liðinu.
Sara Björk er í stóru hlutverki hjá liðinu.
Rosengård vann góðan sigur á Hammarby, 1-0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna. Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Rosengård.

Alexandra Rile skoraði eina mark leiksins en það kom á 86. mínútu leiksins.

Rosengård  er í öðru sæti deildarinnar með 42 stig, einu stigi á eftir Eskilstuna United, sem á reyndar einn leik til góða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×