Lífið

Reiðikast Dennis Quaid var gabb

Samúel Karl Ólason skrifar
Dennis Quaid í meintu reiðiskasti.
Dennis Quaid í meintu reiðiskasti.
Myndband sem virtist sýna leikarann Dennis Quaid missa stjórn á skapi sínu á setti kvikmyndar lak á netið fyrr í vikunni. Margir erlendir miðlar fjölluðu um málið og þeirra á meðal TMZ. Í myndbandinu öskraði hann á samstarfsmenn sína og blótaði þeim í sand og ösku.

Upprunalega myndbandið má sjá hér að neðan.

Nú hefur komið í ljós að um hrekk Funny or Die var að ræða. Á bakvið tjöldin má sjá að margt sem Quaid setti út á í upprunalega myndbandinu á við rök að styðjast.

Hér að neðan má sjá myndband Funny or Die.

° Hér má hlusta á leikarann Christian Bale missa stjórn á skapi sínu á setti kvikmyndar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×