Lífið

Stinga saman á öll stóru kýlin

Guðrún Ansnes skrifar
Gera má ráð fyrir að hlustendur Rásar 2 sperri eyrun þegar Hugleikur og Anna láta gamminn geysa.
Gera má ráð fyrir að hlustendur Rásar 2 sperri eyrun þegar Hugleikur og Anna láta gamminn geysa.
Anna Tara Andrésdóttir, útvarpskona og meðlimur Reykjavíkurdætra og Hljómsveitt, fer af stað með útvarpsþáttinn Kynlegir kvistir á Rás 2 í næstu viku og fær sjálfan Hugleik Dagsson sér til halds og trausts. Munu þau stinga á stærðarinnar kýli í þáttunum.

„Við ætlum að fjalla um alls konar málefni, misviðkvæm. Annar þátturinn fer til dæmis í að grandskoða kynlífsfíkn sem mörgum þykir aðhlátursefni eða afsökun fyrir framhjáhöldum,“ segir Anna.

Hún segist spennt fyrir að vinna með Hugleiki að verkefninu. „Ég þekkti hann ekki neitt þegar ég bað hann um að vera með mér í þessu, en núna er ég farin að þekkja hann skuggalega vel,“ bætir hún við og skellir upp úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×