Menning

Listakona sem enginn má missa af

Magnús Guðmundsson skrifar
Sópransöngkonurnar Sigrún Hjálmtýsdóttir og Maria Lyudko skemmtu sér vel við undirleik Konstantins Ganshin í síðustu viku.
Sópransöngkonurnar Sigrún Hjálmtýsdóttir og Maria Lyudko skemmtu sér vel við undirleik Konstantins Ganshin í síðustu viku. VISIR/GVA
Maria Germanovna Lyudko sópransöngkona frá Pétursborg heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Með henni er píanóleikarinn Konstantin Ganshin, en hann er Íslendingum að góðu kunnur þar sem hann opnaði Norðurljósasal Hörpu í maí 2011.

Klarinettuleikarinn Georges Devardini leikur einnig með þeim á tónleikunum en hann er eiginmaður Mariu Lyudko.

Síðastliðinn fimmtudag var Maria Lyudko með masterclass í Norræna húsinu þar sem mun færri komust að en vildu. Á föstudeginum var hún svo með einkatíma og var Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona á meðal þeirra sem komu í tíma.

„Ég skellti mér bara í söngtíma þrátt fyrir aldur og fyrri störf,“ segir Diddú og hlær. „Það var alveg frábært því við erum að syngja sama fag, eins og sagt er í þessum bransa, og við náðum gríðarlega vel saman. Ég skemmti mér hið minnsta alveg konunglega enda er þetta alveg hreint dásamleg listakona sem enginn má láta fram hjá sér fara. Núna vona ég bara að hún komi sem oftast hingað til okkar því það er alveg frábært að fá svona gesti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.