Lífið

Ricky Martin og Simon Cowell stofna strákaband

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Ricky Martin ætlar að finna nýtt strákaband.
Ricky Martin ætlar að finna nýtt strákaband. vísir/getty
Latínókóngurinn og söngvarinn Ricky Martin, hefur gengið til liðs við Simon Cowell og í sameiningu ætla þeir félagarnir að finna nýtt latínóstrákaband í hæfileikasjónvarpsþáttunum La Banda.

Martin sagðist í samtali við Access Hollywood vera einstaklega spenntur fyrir þessu verkefni, en reikna má með að ekkert verði til sparað í þáttunum og sigurvegaranum eigi eftir að vegna vel, en síðasta strákaband sem Cowell stofnaði, One Direction, er stærsta og vinsælasta strákaband heims.


Tengdar fréttir

Ricky Martin kominn út úr skápnum

Söngvarinn Ricky Martin tilkynnti opinberlega í gær að hann væri samkynhneigður. Hann batt þar með enda á áralangar vangaveltur aðdáenda sinna um kynhneigð sína.

Armani hannar fyrir Martin

Tískumógúllinn Giorgio Armani ætlar að hanna fötin sem Ricky Martin og aðstoðarfólk hans mun klæðast á væntanlegri tónleikaferð söngvarans.

Hættir saman

Söngvarinn Ricky Martin byrjar nýja árið á lausu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×