Lífið

Kemur Kanye með Rihanna?

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Skyldu Rihanna og Kanye koma við á Íslandi eftir tónleikana í Eistlandi?
Skyldu Rihanna og Kanye koma við á Íslandi eftir tónleikana í Eistlandi?
Tónleika- og umboðsfyrirtækið Live Nation hefur staðfest að Rihanna og Kanye West muni halda tónleika saman í Tallinn í Eistlandi þann 25. júlí.

Gáfu þau nýlega út lagið FourFiveSeconds með sjálfum Paul McCartney. Líklegt þykir að þau muni koma fram á fleiri tónleikum saman, en ekkert hefur verið staðfest varðandi það ennþá.

Gefur þetta sögusögnunum um að Rihanna sé á leið til Íslands byr undir báða vængi, þar sem ekki er langt að fara frá Tallinn til Íslands.

Það er því spurning ef Rihanna heldur tónleika á klakanum í sumar, hvort Kanye verði með í för.


Tengdar fréttir

Rihanna í merki Sólveigar Káradóttur

Söngkonan Rihanna klæddist dökkbláum samfestingi úr vor- og sumarlínu breska tískumerkisins Galvan þegar hún fór í eftirpartí eftir Grammy-verðlaunahátíðina sem fram fór í Los Angeles síðastliðinn sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×