Lífið

Þrír ættliðir í Gilinu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Trönur og litir voru sjálfsagðir hlutir í stofunni hjá okkur,“ segir Eiríkur Örn þegar hann hugsar til baka til æskuáranna með mömmu sinni, Iðunni Ágústsdóttur.
„Trönur og litir voru sjálfsagðir hlutir í stofunni hjá okkur,“ segir Eiríkur Örn þegar hann hugsar til baka til æskuáranna með mömmu sinni, Iðunni Ágústsdóttur. Mynd/Auðunn Níelsson
Yfirlitssýning Iðunnar Ágústsdóttur verður opnuð í dag í Listasafninu á Akureyri, í tilefni 75 ára afmælis hennar, og sýning sonar hennar, Eiríks Arnar Magnússonar, í Mjólkurbúðinni. Sýningu á verkum móður Iðunnar, Elísabetar Geirmundsdóttur, lýkur á morgun. 

„Aðal sýningarinnar er að við erum hér þrír ættliðir að sýna í Gilinu á sama tíma, ég, mamma og amma,“ segir Eiríkur Arnar Magnússon, myndlistarmaður, sem opnar sýningu á eigin verkum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag klukkan 16.

„Ég gerði portrett af mömmu, ömmu og mér sem ég síðan klippti reyndar niður og saumaði saman aftur. Það er hugmynd sem ég er búinn að ganga með lengi að mála voða falleg portrett, klippa þau niður og setja saman aftur.“ Eiríkur kveðst ekki setja bútana saman í réttri röð heldur taka þá úr samhengi. „Persónurnar halda samt einkennum sínum þannig að áhorfandinn getur séð af hverjum hver mynd er,“ fullyrðir hann kankvís.

Eiríkur Arnar hefur líka sett upp yfirlitssýningu móður sinnar, Iðunnar Ágústsdóttur myndlistarkonu í Listasafninu á Akureyri og leggur þar áherslu á olíu- og krítarverk. Helstu viðfangsefnin eru landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. „Ég ólst upp við trönur og olíuterpentínulykt í stofunni hjá mömmu. Það er sterkt í minningunni og manni fannst það ósköp eðlilegur hlutur,“ segir hann.

Af sýningu Eiríks Arnar „Portrett af móður minni,“ segir listamaðurinn.
Spurður hvort það hafi verið sjálfsagt í framhaldinu að gera myndlistina að sínu starfi svarar Eiríkur Arnar.

„Já, það var eiginlega óhjákvæmilegt. Ég reyndi á tímabili að komast hjá þessum örlögum en gafst að lokum upp og skellti mér í Listaháskólann. Nú vinn ég með málverk og bókverk.“ 

Amma Eiríks Arnar var Elísabet Geirmundsdóttir. Sýningin Listakonan í fjörunni með verkum hennar hefur verið í Listasafninu á Akureyri frá 10. janúar en henni lýkur á morgun. Í tilefni af síðustu sýningarhelginni verður boðið til söngveislu í austursal Listasafnsins klukkan 14 í dag. Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri og Kór Akureyrarkirkju munu flytja söngdagskrá með lögum og ljóðum Elísabetar. Aðgangur er ókeypis.

Eiríkur hitti aldrei þessa ömmu sína. „Hún dó 1959 en ég fæddist ekki fyrr en 1975,“ útskýrir hann. „Þannig að ég nálgast hana bara gegnum verkin hennar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×