Lífið

Metþátttaka í sleðahundakeppni

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Keppt er í mörgum aldursflokkum á Íslandsmeistaramótinu og þeir sem eru undir keppnisaldri geta fengið að sitja á sleðunum.
Keppt er í mörgum aldursflokkum á Íslandsmeistaramótinu og þeir sem eru undir keppnisaldri geta fengið að sitja á sleðunum. mynd/pétur skarp
Á Íslandsmeistaramótinu í sleðahundakeppni er bæði keppt á gönguskíðum og sleðum. Flokkarnir eru fjölmargir, karla- og kvennaflokkar, aldursskiptir flokkar og svo flokkar eftir því hve margir hundar draga keppendur áfram. Mótið hefst í dag og heldur áfram á morgun. Þegar samband náðist við Gunnar Ómarsson, einn skipuleggjenda mótsins, daginn fyrir keppni, var hann á kafi í undirbúningi fyrir mótið og þá aðallega að leita að snjó.

„Já, við erum að reyna að finna bestu staðina fyrir brautina. Við erum í snjóleit í augnablikinu. Þetta er bara þannig sport að maður verður að spila eftir veðrinu.“

Í ár er metþátttaka, eða 68 keppendur.

„Það var algjör hundasprenging í hruninu og við finnum fyrir vaxandi vinsældum með hverju árinu. Það eiga þó ekki allir hundana sjálfir. Sumir eiga kannski einn husky-hund en fá svo lánaða tvo til þrjá fyrir keppnina. Við hjónin erum bæði í þessu og ég átti að fá að keppa þetta árið með okkar hunda en þá kom hún aftan að mér og fékk lánaða hunda og ætlar að keppa við mig,“ segir Gunnar léttur í bragði. 

Flestir hundarnir eru af husky-kyni.mynd/Pétur skarp
Heimagerðir sleðar 

Keppendur keppa á alls kyns sleðum og flestir eru heimagerðir. „Sleðarnir eru af öllum gerðum. Sumir úr tré, áli og aðrir með stóra Grænlandssleða sem myndu henta til búslóðarflutninga. Flestir eru með husky-hunda en einnig eru blendingar og aðrar tegundir. Ég hef sjálfur keppt með doberman-hund og border collie er líka vinsæl tegund enda fjörugir hundar.“ 

Í dag verður keppt á sleðum en á morgun á gönguskíðum.

„Það eru margar aðferðir til að keppa með sleðahundum. Gönguskíði er ein aðferð en þá draga hundarnir keppandann áfram með mittisbelti og á haustin er keppt á reiðhjólum, hlaupahjólum og bara hlaupandi á eigin fótum enda enginn snjór. Þetta snýst fyrst og fremst um að hundarnir leiði veginn, séu á undan en ekki bókstaflega dragi keppandann áfram.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×