Lífið

Tóku selfie með Cash

Margrét Eir
Margrét Eir Vísir
Fullt var á Johnny Cash tribute-tónleikana í Háskólabíó á laugardagskvöld og gríðarleg stemning.

Á tónleikunum komu meðal annarra fram sonur sjálfs Johnny Cash og June Carter, John Carter Cash, en hann var að koma til Íslands í fyrsta sinn.

„Þetta var mjög skemmtilegt, frábært fólk og fullt hús. Honum fannst þetta rosalega gaman og það ver vel tekið á móti honum,“ segir Margrét Eir, sem kom fram ásamt Páli Rósinkranz og Valgerði Guðnadóttur.

Einhverjir gestir fengu að taka myndir af sér með honum eftir tónleikana, sem hann hafði gaman af og eftir tónleikana skemmti hann sér meðal annars á Mímisbar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×