Lífið

Björn Hlynur rokkaði fram á rauða nótt

Björn Hlynur
Björn Hlynur Vísir
Troðfullt var út úr dyrum á Rósenberg á laugardagskvöld, þar sem leikarinn Björn Hlynur Haraldsson hélt upp á fertugsafmælið sitt, en hann varð fertugur í fyrra.

Fjölskyldu og vinum Björns var meðal annars boðið upp á humar í upphafi kvölds, en þegar líða tók á kvöldið steig Björn á svið ásamt hljómsveit sinni.

Þeir slógu svo sannarlega í gegn þar sem þeir tóku alla helstu rokkslagarana fram á rauða nótt.

Meðal annarra gesta voru Stefán Máni rithöfundur, Nína Dögg Filippusdóttir leikkona og Filippía Elísdóttir búningahönnuður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×