Á brettum í Bandaríkjunum Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 11. mars 2015 12:00 Þau Jónas og Arna stunda allar tegundir brettaiðkunar. Í Kaliforníu reyndu þau að komast sem mest í sjóinn á brimbretti.
Jónas Stefánsson, margmiðlunarfræðingur og leiðsögumaður, og unnusta hans Arna Benný Harðardóttir, íþróttafræðingur, elska að ferðast og gera mikið af því. Nýlega fóru þau í „road-trip“ niður alla vesturströnd Bandaríkjanna og gistu flest allar nætur í bílnum sem þau voru með á leigu. „Við gistum tvær nætur á hótelum, annars vorum við bara í bílnum þannig að við vorum ekki bundin af neinum gististöðum á ferð okkar sem var eins lítið skipulögð og hægt var,“ segir Jónas. „Við vorum búin að ákveða leiðina sem við ætluðum okkur að fara en annað ekki. Við lentum í Seattle, keyrðum svo eftir ströndinni til San Diego, fórum svo aðeins inn í landið í gegnum Las Vegas og Utha og svo upp eftir aftur til Seattle. Ef við höfðum mikið að skoða þá keyrðum við styttra þann daginn en ef það var minna að skoða þá keyrðum við lengra. Þetta var sextán daga löng ferð sem var í alla staði frábær.“Brunað í gegnum eyðimörkina. Jónas og Arna grípa í brettin við hvert tækifæri.Parið stundar jaðarsport af miklum krafti og Jónas segir þau eiga allt of mikið af áhugamálum en auk þess að vera á brettum af öllu tagi, vélsleðum og mótorhjólum er Arna á kafi í fótbolta og Jónas á skíðum. Þau hafa líka verið dugleg að ferðast saman en þau fóru í lengri útgáfu af Bandaríkjaferðinni þegar þau ferðuðust um Evrópu í bíl í þrjá mánuði. „Síðustu vetur höfum við farið í skíðaferðir en núna langaði okkur að gera eitthvað nýtt. Okkur langaði að komast í sól og hita og geta sörfað þannig að við ákváðum að skella okkur í þessa ferð. Við sáum mikið af fallegum stöðum og þegar við vorum komin syðst í Kaliforníu þá reyndum við að komast eins mikið í sjóinn og við gátum til að komast í góðar öldur.“Arches National Park er þjóðgarður með miklar steinmyndanir. Jónas segir þau hafa getað eytt mun meiri tíma þar en þau gerðu.Jónas segir ekki hægt að nefna neitt eitt sem hafi staðið upp úr í ferð þeirra skötuhjúa en segir það hafa verið magnað að keyra alla strandlengjuna. „Frá Oregon niður að Kaliforníu var landslagið ótrúlega fjölbreytt og það breyttist á klukkutíma fresti fyrir framan okkur. Það var líka gaman að skoða borgirnar og þar stóð San Fransisco upp úr sem falleg og skemmtileg borg en Las Vegas er bara frumskógur út af fyrir sig. Að sjálfsögðu skoðuðum við líka Miklagljúfur og svo hefðum við getað eytt miklu meiri tíma í Utah en við gerðum því þar er mikið af þjóðgörðum sem vert er að skoða. Við fórum í einn slíkan, Arches National Park sem er alveg fáránlega flottur,“ segir Jónas greinilega hrifinn.
Mest lesið Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Lífið Fékk unnustu í afmælisgjöf Lífið Dreymir um að eiga Range Rover Lífið Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ Lífið Ég hætti að lifa bara af - og fór að LIFA, að vera þátttakandi í lífinu Lífið samstarf Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Lífið Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi Lífið samstarf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Fleiri fréttir Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Frumsýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óskaland Teknó baróninn á Radar á laugardag Fékk unnustu í afmælisgjöf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Dreymir um að eiga Range Rover Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Sjá meira