Lífið

Gói til Þjóðleikhússins

Adda Soffia skrifar
Guðjón Davíð Karlsson
Guðjón Davíð Karlsson Vísir
Leikarinn Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, mun ganga til liðs við Þjóðleikhúsið á komandi leikári.

Gói hefur undanfarin ár verið fastráðinn hjá Borgarleikhúsinu þar sem hann hefur farið með mörg af stærri hlutverkum í sýningum þar meðal annars í Mary Poppins, Gauragang og nú síðast í Beint í æð.

Fyrsta hlutverk Góa á nýjum stað verður í Hróa hetti sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu í haust í samstarfi við Vesturport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×