Lífið

Næsta frú Tekanna

Guðrún Ansnes skrifar
Emma Thompson er eins og kamelljón. Næst sjáum við hana bregða sér í hlutverk frú Tekönnu.
Emma Thompson er eins og kamelljón. Næst sjáum við hana bregða sér í hlutverk frú Tekönnu. vísir/getty
Mikil dulúð hvílir yfir leikaraskipan myndarinnar Beauty and the Beast, eða Fríða og dýrið. Disney hefur þó staðfest að Emma Thompson mun fara með hlutverk í myndinni.  Mun hún bregða sér í hlutverk frú Tekönnu, eða Mrs. Potts eins og hún kallast á frummálinu.

Ljóst þykir að kvikmyndin verður stjörnum prýdd.

Disney hefur þó gefið upp að Emma Wattson mun leika sjálfa Fríðu, eða Belle, sem er aðalpersóna sögunnar eins og titillinn gefur til kynna. Mikil spenna hefur þegar myndast fyrir kvikmyndinni enda ekki seinna vænna, aðeins tæp tvö ár í frumsýningu, en hún mun fara fram þann 17. mars 2017 vestanhafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×