Lífið

Beyoncé of upptekin fyrir Clint Eastwood

Clint Eastwood segir Beyoncé vera of upptekna.
Clint Eastwood segir Beyoncé vera of upptekna.
Leikstjórinn Clint Eastwood hefur ætlað að endurgera myndina A Star is Born lengi.

Það sem hins vegar stendur í veginum fyrir því að gera hana er það að hann vill fá söngkonuna Beyoncé í aðalhlutverkið, en vandamálið er að hún er hreinlega of upptekin.

„Ég hef reynt að fá tíma með henni til að skipuleggja, en hún er mjög vinsæl og upptekin. En ég hef ekki gefið upp alla von enn,“ segir Eastwood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×