Lífið

Hannar klassíska fatalínu fyrir verslunina Sautján

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir
Elísabet Gunnarsdóttir Vísir/Saga Sig
Elísabet Gunnarsdóttir, tískubloggari á Trendnet, hefur fyrst íslenskra bloggara hannað fatalínu í samstarfi við NTC, Moss By Elísabet Gunnars. „Þau leituðu til mín fyrir ári og báðu mig að gera línu. Ég var nú ekki alveg tilbúin í þetta fyrst, þar sem ég er alls enginn fatahönnuður, en ákvað svo að slá til,“ segir Elísabet.

Hún ákvað frá upphafi að línan skyldi innihalda klassískar flíkur sem virka alltaf í fataskápnum. „Það var aldrei ætlunin að finna upp hjólið. Ég var með mínar hugmyndir sem ég vann svo með fatahönnuði hjá NTC.“ Línan samanstendur af tólf flíkum; kápum, skyrtum, bolum, leðurbuxum og bikerjakka.

„Í gegnum árin hef ég imprað á því við lesendur mína að „basic sé best“ og það hefur alltaf verið mitt mottó. Ætli setningin lýsi ekki línunni best,“ segir Elísabet og bætir við; „Lesendur bloggsins míns hafa alltaf verið duglegar að senda mér pósta með fyrirspurnum varðandi outfit, þannig að ætli lesendurnir séu ekki minn helsti innblástur fyrir línuna.“

Hugmyndavinnan byrjaði fyrir ári og segir Elísabet að línan hafi tekið miklum breytingum síðan þá. Sjálf starfaði Elísabet hjá NTC í mörg ár og var því gaman fyrir hana að taka þátt. „Ég ber mjög sterkar taugar til fyrirtækisins og því fannst mér mjög gaman að koma inn og vinna með þeim aftur á annan hátt. Þetta er búið að vera langt en mjög skemmtilegt ferli.“

Erlendis er algengt að fyrirtæki fái tískubloggara með sér í lið til þess að hanna fatnað eða fylgihluti, en þetta er líklega í fyrsta sinn sem íslenskur bloggari hannar fyrir verslun. „Það eru mörg fordæmi fyrir þessu úti í heimi og gaman að við Íslendingar séum að taka þátt.“

Að auki voru gerðir taupokar með merkinu sem seldir verða í Sautján og rennur allur ágóði af þeim til Krabbameinsfélagsins. Línan er væntanleg í verslun Sautján í Kringlunni á föstudag klukkan 12.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×