Lífið

Hópferð í Húð&Kyn

Guðrún Ansnes skrifar
"Vertu með! Vertu klín!“ er slagorð hópsins.
"Vertu með! Vertu klín!“ er slagorð hópsins. Vísir/Nordicphotos
Hátt í 230 manns hafa boðað komu sína á viðburðinn „Hópferð í Húð&Kyn“ sem blásið hefur verið til á Facebook. Viðburðurinn er stílaður á 3. maí næstkomandi og virðist allur hinn skemmtilegasti.

Ber hæst rútuferð á staðinn, grill og veislu að lokinni sýnatöku. Veisluhöldin munu svo halda áfram í Hljómskálagarðinum að viku liðinni þegar niðurstöður koma í hús.



Göngudeild húð- og kynsjúkdóma vildi ekki kannast við uppátækið og þvertók fyrir að eiga hlut í máli. Þó vakti hugmyndin mikla kátínu starfsmanna deildarinnar sem hvatti engu að síður alla til að panta sér tíma og láta skoða sig ef ástæða er til. Aðstandendur hópsins kusu að tjá sig ekki um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×