Lífið

Himbrimi og Rúnar Þórisson á Húrra

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Rúnar Þórisson.
Rúnar Þórisson. vísir/e.ól.
Í kvöld klukkan 21.00 verða tónleikar á HÚRRA þar sem fram koma hljómsveitin Himbrimi og Rúnar Þórisson ásamt hljómsveit. Að því loknu tekur DJ Myth & Lazybones við.

Himbrimi hefur vakið töluverða athygli að undanförnu með lögunum Highway og Tearing auk þess að hafa fengið tvær tilnefningar á Hlustendaverðlaununum X-977, Himbrimi sem nýliði ársins og söngkonan Margrét sem söngkona ársins.

Rúnar Þórisson hefur sent frá sér þrjár sólóplötur og er um þessar mundir að vinna að nýju verkefni með ákveðið „concept“ og vinnubrögð í huga. Mun hann gefa út eitt lag í mánuði á vefnum þar til 7. nóvember að út kemur diskur með heildarafrakstrinum. Nú þegar hafa þrjú lög komið út, það nýjasta nú í vikunni, lagið Orð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×