Skrítið að meirihluti skikki suma í verkfall Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. mars 2015 07:00 Formaður BHM bendir á að ríkið geri bara athugasemd við hluta boðaðra verkfalla hjá aðildarfélögum BHM í næstu viku. Til dæmis sé löglega boðað til aðgerða geislafræðinga og fleiri hópa. Fréttablaðið/Pjetur
Félagsdómur tekur fyrir á morgun mál sem ríkið hefur höfðað vegna verkfallsboðunar nokkurra aðildarfélaga Bandalags háskólamanna (BHM). Páll Halldórsson, formaður BHM, segir ríkið kynna greinargerð sína vegna málarekstursins í dag og þá skýrist kannski staðan. Þau séu hins vegar öðru vísi vaxin en mál Starfsgreinasambandsins þar sem verkfallskosningar voru dæmdar ólögmætar í Félagsdómi fyrir helgi. „Við hefðum talið nær að leysa deiluna en standa í einhverjum lagaþrætum,“ segir Páll, en ríkið gerir athugasemdir við verkfallskosningu í félögum BHM þar sem bara hluti félagsmanna fer í verkfall.Páll HalldórssonPáll segir deiluna standa um hvort í slíkum tilvikum eigi allir félagsmenn að greiða atkvæði, líkt og ríkið uppástandi, eða bara þeir sem verkfallið nær til, líkt og sé afstaða BHM. „Og ég reyndar sé ekki skynsemina í því að einhver meirihluti félags geti skikkað minnihluta í verkfall,“ segir Páll. Málsókn ríkisins segir Páll snúa að náttúrufræðingum, matvæla- og næringarfræðingum, lögfræðingum, ljósmæðrum, leikstjórum og háskólamenntuðum starfsmönnum Stjórnarráðsins. Varðandi það hvort sú ákvörðun ríkisins að vísa þessum málum til Félagsdóms setji deiluna í hnút þá segir Páll sitt fólk nú reyna að halda jafnvægi sínu. „Við snúum okkur bara að því að finna lausnir. En það er alveg ljóst að þetta hjálpar ekki til í deilunni.“ Þá segir Páll að næsti fundur í deilum félaga BHM við ríkið sé á morgun, en hefur ekki mjög miklar væntingar til niðurstöðu á þeim fundi. „Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að ríkinu liggi ekkert á og sé þá frekar í málaferlum og einhverjum slíkum leikjum.“ BHM geri hins vegar ráð fyrir að verkföll hefjist í næstu viku. Falli mál með ríkinu í Félagsdómi þá gerist ekki annað en verkfallsaðgerðir þeirra félaga tefjist aðeins. Aðgerðir hinna standi. Fyrir liggur hins vegar að verkfallsaðgerðir félaga Starfsgreinasambandsins tefjast um tvær til þrjár vikur, en til stóð að þau verkföll hæfust 10. apríl næstkomandi. Samtök atvinnulífsins segja á vef sínum að niðurstaða Félagsdóms í þeim málum hafi ekki átt að koma á óvart því árið 2011 hafi komið dómur um að sameiginleg atkvæðagreiðsla stéttarfélaga um verkfallsaðgerðir sé andstæð lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Sjálfstæða atkvæðagreiðslu þurfi hjá hverju félagi fyrir sig um boðun verkfalls. „Það kom því á óvart að SGS færi af stað með sameiginlega atkvæðagreiðslu sem vitað var frá upphafi að ekki stæðist lög.“
Tengdar fréttir Þrjú stærstu félögin leggja fram kröfugerð Samið verður fyrir um 5200 manns innan BSRB. 26. mars 2015 15:23 Verkfall tæknimanna RÚV dæmt ólöglegt Boðað verkfall tæknimanna á RÚV sem hefjast átti klukkan 6 í fyrramálið hefur verið dæmt ólöglegt af Félagsdómi. 25. mars 2015 18:09 Námslánin eru að sliga háskólamenn Þriðjungur félagsmanna BHM skuldar fimm milljónir eða meira í námslán. Verkföll eftir páska verði ekki samið. Segja endurgreiðslu námslána rýra kaupmátt. 26. mars 2015 07:00 Sársaukafull aðgerð en óumflýjanleg Af um 180 starfsmönnum Vísis hf., á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi eru tíu atvinnulausir eftir að starfsemin var flutt til Grindavíkur fyrir réttu ári. Pétur H. Pálsson segir að tækniþróun og ytri aðstæður hafa gert aðgerðina óumflýjanlega. 27. mars 2015 07:00 Kæra ríkisins raskar ekki þunga aðgerða BHM Líklegt að ríkið kæri verkfallsboðun 5 af 18 félögum BHM sem samþykkt hafa verkfallsaðgerðir strax eftir páska. 27. mars 2015 13:14 AFL efnir til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun AFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá ALCOA Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu. 27. mars 2015 17:59 Tækifæri til stöðugleika runnið úr greipum? Greiningardeild Íslandsbanka telur leiðréttinguna skýra stóran þátt verðbólgunnar. 27. mars 2015 11:55 Segir íslenskt atvinnulíf byggt á illri meðferð á starfsfólki Gunnar Smári Egilsson segir afstöðu HB Granda gagnvart starfsfólki sínu óverjandi. 30. mars 2015 11:39 Mest lesið Munurinn nemur þriggja ára skólagöngu Innlent Breskar konur stíga fram og ásaka Tate um nauðgun Erlent „Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“ Innlent Fegurðarsamkeppnin sem tók ljótan snúning Erlent „Gætu orðið áhrifamestu kappræður allra tíma“ Erlent Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky Erlent Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi Innlent „Þetta er alvöru hret“ Veður Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina Erlent Skoða að breyta Hópinu í safn Innlent Fleiri fréttir Hlaup hafið að nýju í Skálm Reglur um fæðingarstyrk geri ráð fyrir einsleitum hópi námsmanna „Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“ Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss Munurinn nemur þriggja ára skólagöngu Skoða að breyta Hópinu í safn Ópíóðar í fráveituvatni og einstakt samband stúlku og æðarfugls Fólk sem líti aldrei glaðan dag reyti hár sitt yfir saklausri auglýsingu 14 pör eða hjón í Hrunamannahreppi eiga von á barni Sturluð stemning á tónleikum Skálmaldar undir norðurljósunum Engin vopn á Ljósanótt og Októberfest Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Hundi haldið sofandi eftir amfetamíneitrun Ljósanæturuppgjör og stórtónleikar Skálmaldar Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi Staða innflytjenda og kæra vegna Búrfellsvirkjunnar Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar Kýldi tvo lögregluþjóna í andlitið Gjaldþrot flugfélags leiddi til fyrstu flugvélasmíði Íslands Réðst á ferðamann og rændi hann Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar Smali slasaðist við smalamennsku Stúlkan er fundin Leikskólabörn og 88 ára harmoníkuleikari Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata „Þetta má aldrei gerast aftur“ Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund „Það skánar ekki við að búa til eins auglýsingu með karllíkama“ Klæðing fauk af veginum í hvassviðri Slökkviliðinu sigað á grunlausa grillara Sjá meira
Þrjú stærstu félögin leggja fram kröfugerð Samið verður fyrir um 5200 manns innan BSRB. 26. mars 2015 15:23
Verkfall tæknimanna RÚV dæmt ólöglegt Boðað verkfall tæknimanna á RÚV sem hefjast átti klukkan 6 í fyrramálið hefur verið dæmt ólöglegt af Félagsdómi. 25. mars 2015 18:09
Námslánin eru að sliga háskólamenn Þriðjungur félagsmanna BHM skuldar fimm milljónir eða meira í námslán. Verkföll eftir páska verði ekki samið. Segja endurgreiðslu námslána rýra kaupmátt. 26. mars 2015 07:00
Sársaukafull aðgerð en óumflýjanleg Af um 180 starfsmönnum Vísis hf., á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi eru tíu atvinnulausir eftir að starfsemin var flutt til Grindavíkur fyrir réttu ári. Pétur H. Pálsson segir að tækniþróun og ytri aðstæður hafa gert aðgerðina óumflýjanlega. 27. mars 2015 07:00
Kæra ríkisins raskar ekki þunga aðgerða BHM Líklegt að ríkið kæri verkfallsboðun 5 af 18 félögum BHM sem samþykkt hafa verkfallsaðgerðir strax eftir páska. 27. mars 2015 13:14
AFL efnir til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun AFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá ALCOA Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu. 27. mars 2015 17:59
Tækifæri til stöðugleika runnið úr greipum? Greiningardeild Íslandsbanka telur leiðréttinguna skýra stóran þátt verðbólgunnar. 27. mars 2015 11:55
Segir íslenskt atvinnulíf byggt á illri meðferð á starfsfólki Gunnar Smári Egilsson segir afstöðu HB Granda gagnvart starfsfólki sínu óverjandi. 30. mars 2015 11:39