Lífið

Þorir ekki að taka þátt en þorir að horfa á

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Gauti Þeyr er einn af skipuleggjendum AK Extreme sem fer fram um helgina.
Gauti Þeyr er einn af skipuleggjendum AK Extreme sem fer fram um helgina. Vísir/Pjetur
Á morgun hefst snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme sem, líkt og nafnið gefur til kynna, fer fram á Akureyri. Meðal viðburða eru tvær snjóbrettakeppnir auk þess sem tónlistarmennirnir Gísli Pálmi, Agent Fresco og Úlfur Úlfur koma fram.

Hátíðin hefst með keppni niður fjallið sem öllum er velkomið að taka þátt í og á föstudaginn verður Burn Jib session í göngugötunni þar sem ýmsir vanir snjóbrettakappar sýna listir sínar á nokkurs konar slá. „Meðal annars verður kveikt í reilinu, það er rosa hættulegt og algjört stönt,“ segir Gauti Þeyr Másson, einn af skipuleggjendum AK Extreme.

Hápunktur hátíðarinnar er á laugardaginn þegar svokallað Big Jump-mót fer fram. „Þá byggjum við pall úr Eimskipsgámum og stöflum upp fimm eða sex gámum. Þetta er alveg hræðilegt og ég myndi aldrei fara þarna niður,“ segir Gauti ákveðinn og bætir við að einungis reyndir snjóbretta-, skíða- og sleðakappar taki þátt en mótið sé mikið sjónarspil fyrir áhorfendur. 

Hér má sjá Big Jump pallinn frá því í fyrra.Mynd/AkExtreme
„Það er mega gaman, ég hef aldrei tekið þátt í Big Jump-mótinu af því að ég þori það ekki en ég þori að horfa á það,“ segir hann hress. 

Gauti segir mikinn fjölda manns hafa verið viðstaddan hátíðina í fyrra. „Við ætlum að toppa það. Ég finn fyrir hita úr Reykjavíkinni, fólk er að fara að mæta. Þetta er líka bara góð afsökun til þess að fara úr Reykjavík í smá stund og með seinustu dögunum sem maður getur rennt sér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×