Lífið

Risastór hjólabrettaaðstaða inni í miðju Glerártorgi

Aðstaðan er mjög rúmgóð og glæsileg.
Aðstaðan er mjög rúmgóð og glæsileg.
Á Glerártorgi á Akureyri hefur verið opnuð stærsta innanhússhjólabrettaaðstaða á landinu.

„Við opnuðum þetta í samstarfi við Mohawks í tilraunaskyni og erum með þetta á reynslu út apríl. Þetta hefur gengið rosalega vel og hér eru alveg 20 upp í 50 manns á dag,“ segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson hjá Jaðaríþróttafélaginu Hasar, sem er einn af aðstandendum aðstöðunnar.

Gunnlaugur Víðir Guðmundsson
Hjólabrettafólk á Akureyri hefur ekki haft neina æfingaaðstöðu innanhúss fyrr en nú, og vonast þau til að geta haldið aðstöðunni áfram, ásamt því að bjóða fleirum að nýta hana. „Hugmyndin á bak við þetta er að þarna geti ekki aðeins hjólabrettafólk komið og æft yfir vetrarmánuðina, heldur er draumurinn að þarna geti snjóbretta-, parkour- og fimleikaiðkendur æft í samstarfi við Hasar og félögin sem þau æfa hjá,“ segir Gunnlaugur. Hann segir Glerártorg vera frábæran stað fyrir þessa aðstöðu og að eigendur hafi tekið vel í hugmyndina.

Þessi á framtíðina fyrir sér.Fréttablaðið/Auðunn Níelsson
„Eina svæðið sem hjólabrettafólk hafði var ekki í alfaraleið, einhvers staðar í rjóðri, þannig að það gat verið hættulegt. Hjá okkur er alltaf starfsmaður á vakt og allir sem hingað koma eru skyldugir til þess að vera með hjálm,“ segir hann. Ef allt gengur upp er draumurinn að bjóða upp á námskeið á svæðinu. „Draumurinn væri að fá til dæmis Fimleikafélag Akureyrar, parkour- og snjóbrettafólk með okkur í samstarf, þannig að það væri hægt að bjóða þeim að æfa líka hér,“ segir hann.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×