Lífið

Dove hristir upp í landanum

Guðrún Ansnes skrifar
#sönnfegurð
#sönnfegurð Mynd/Facebooksíða Dove
Ólík sjónarhorn mættust á samskiptamiðlum í gær og þá sérstaklega á Twitter þar sem herferðin var annars vegar lofuð í hástert og talin þörf áminning út í samfélagið, á meðan aðrir töldu að um sannkallaðan úlf í sauðargæru væri að ræða.

Megininntak herferðarinnar er að benda konum á að allar séu þær fallegar, burtséð frá stærðarhlutföllum eða fjölda misfella á líkamanum.

Bornar voru saman upplifanir sjö ára stúlkna og háskólanema varðandi sundferðir og má með sanni segja að munur hafi verið þar á.

Á meðan yngri hópurinn hafði mestar áhyggjur af að fá rúsínufingur af langri sundferð var þeim eldri umhugað um of stór læri eða hvers kyns ólögulegheit á sundlaugarbakkanum.

Fréttablaðið tók þær Maríu Lilju Þrastardóttur fjölmiðlakonu og Þóru Tómasdóttur kvikmyndagerðarkonu tali og fékk að kynnast ólíkum skoðunum þessara skeleggu kvenna á herferðinni.

María Lilja Þrastardóttir
Tveir pólar

María Lilja segir sér ekki hugnast svona aðferðir: „Það skýtur náttúrulega skökku við þegar stórfyrirtæki sem makar krókinn á útlitskomplexum fer að selja vörurnar sínar undir formerkjum baráttunnar.“

Hún bendir á að hér sé um að ræða fyrirtæki sem beinlínis hagnist á hlutgervingunni og því sé aldeilis eitthvað bogið við að taka hinn pólinn.

„Ef þeir ætluðu sér raunverulega að bæta sjálfsmyndir kvenna myndu þeir ekki vera að bæta þessari fegrunarlínu sinni inn í lok myndbandsins,“ segir María Lilja.

Þóra TómasdóttirVísir
Þóra er annarrar skoðunar. „Mér hefur fundist Dove skera sig úr í flóru snyrtivöruframleiðenda sem auglýsa fótósjoppaðar konur, sem ekki eru til í alvörunni.

Það er frábært framtak, og skref í átt að nútímanum, að þora að leggja það á heimsbyggðina að sýna hvernig konur eru vaxnar og óþarfi að skjóta það í kaf,“ segir hún og bætir jafnframt við að hún þekki eignarhald Dove ekki neitt.

Þóra segir ekki veita af að sýna unglingsstúlkum að þær megi hætta í megrun og bendir á að ef þau skilaboð komi frá Dove, þá sé það einfaldlega gott mál.

„Ég skil gagnrýnina, fyrirtæki eiga ekki að kaupa sér ímyndir, en ef við eigum á annað borð að kryfja auglýsingar snyrtivöruframleiðenda þá myndi ég beina fókusnum í aðra átt,“ segir hún að lokum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×