Lífið

Leitinni að Reyni Pétri lauk hjá togarasjómanni við Grænlandsstrendur í gærdag

Guðrún Ansnes skrifar
Reynir Pétur á góðri stundu, í Hrísey. Hann þarf þó ekki að fara svo langt eftir sjálfum sér, styttan er í Reykjavík.
Reynir Pétur á góðri stundu, í Hrísey. Hann þarf þó ekki að fara svo langt eftir sjálfum sér, styttan er í Reykjavík.
„Ég fer í bæinn og sæki mig,“ sagði göngugarpurinn Reynir Pétur Ingvarsson þegar símtalið barst, um miðbik dagsins í gær.

Hafði Reynir þá leitað logandi ljósi að styttu sem mótuð var af honum fyrir um þrjátíu árum í tilefni göngu hans hringinn í kringum landið.

Reynir, í samstarfi við Valgeir Fridolf Backman félagsmálafulltrúa á Sólheimum, setti inn fésbókarfærslu þar sem upplýsinga um styttuna var óskað. Slóð hennar virtist með öllu hulin en tóku vinir Reynis við sér og deildu færslunni af öllum mætti.

„Tæpum tíu klukkustundum síðar er hringt í okkur utan af Grænlandshafi þar sem núverandi eigandi styttunnar lét okkur vita hvar hún væri niðurkomin,“ segir Valgeir.

Var það Jónas Hallur Finnbogason togarasjómaður sem var á línunni með þessar gleðifréttir og sagðist glaður vilja senda Reyni Pétur í sumardvöl á Sólheima til hins raunverulega Reynis Péturs.

„Við munum því gera okkur bæjarferð í næstu viku og sækja styttuna, sem er staðsett í Borgartúninu á skrifstofu Jónasar,“ segir Valgeir og bætir við: „Reynir hafði strax orð á að hann langaði mikið til að gefa Jónasi kaffi til að mýkja hann svolítið upp.“

Styttan, sem er um metri á hæð, var smíðuð af listakonunni Ríkeyju á sínum tíma. Lengi vel var hún í glugga Ríkeyjar á Hverfisgötunni. Munu hún verða til sýnis á Sólheimum í sumar. 

Reynir Pétur er fundinn! Jónas Hallur Finnbogason (vélstjóri) eigandi Reynis Péturs( styttunnar) hringdi í dag frá...

Posted by Reynir Pétur on 30. apríl 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×