Birkir Blær er á meðal ungu skáldanna innan vébanda Meðgönguljóða en samstarf hans við útgáfuna hófst með óvenjulegum hætti á síðasta ári með ljóðabók sem kom út í athugasemdakerfi Vísis þar sem Birkir Blær skipti ljóðum inn fyrir athugasemdir.
„Ég er reyndar meira í prósanum en ljóðinu en mér fannst þessi hugmynd sem var unnin í samstarfi við Vísi og Meðgönguljóð of góð til þess að láta hana fram hjá sér fara. Valgerður Þóroddsdóttir hjá Meðgönguljóðum vann að þessari hugmynd með mér og í framhaldinu fórum við að tala við fleiri skáld innan forlagsins með þá hugmynd að færa út kvíarnar í útgáfunni. Okkur langaði einkum til þess að gefa út eina og eina smásögu í senn þar sem það er form sem hentar ákaflega vel fyrir lesendur til þess að grípa með sér í dagsins önn. Þetta er leið til þess að færa skáldskap nær fólki, hafa hann aðgengilegan og hversdagslegri.“
Í dag kemur út smásagan El Dorado eftir Birki Blæ sem verður fyrsta sagan í smásagnaseríu Meðgönguljóða.
Sagan birtist á myndbandi hér á Vísi í upplestri höfundar – án endurgjalds og aðgengileg í dagsins önn.
Þeir sem hafa áhuga á íslenskum skáldskap geta þá gefið sér tíma til að hlusta á söguna, án þess að þurfa að gera sér sérstaka ferð út í bókabúð til að grafa hana upp,“ útskýrir Birkir Blær.
„Með smásagnaseríunni er markmiðið að gefa út eina og eina smásögu í senn eftir upprennandi höfunda og blása þannig lífi í smásagnahefðina á Íslandi. Þetta er nokkuð löng smásaga og hentar þeim best sem hafa nægan tíma til að halla sér aftur í sófanum heima og hlusta í rólegheitunum, eða þeim sem þurfa að vaska mjög mikið upp og geta haft lesturinn í eyrunum. Eða eitthvað í þeim dúr.“

Birkir Blær segir stefnuna vera að gefa út eina og eina smásögu í senn – í stað þess að gefa út heil smásagnasöfn – og sömuleiðis eina og eina fræðigrein.
„Með fræðigreinaseríunni vonumst við til þess að geta leyst fræðigreinar og vangaveltur úr heimi háskólasamfélagsins – sem oft og tíðum virkar dálítið lokað og óaðgengilegt – og gert þær að hversdagslegra lesefni sem á ekki aðeins erindi við háskólamenntaða spekinga, heldur einnig venjulegt ungt fólk í strætó.“
Til að fagna fyrstu smásögunni, sem og nýju seríunum tveimur sem væntanlegar eru, munu Meðgönguljóð standa fyrir upplestrarkvöldi og allsherjarfögnuði á Lofti Hosteli í kvöld. Þar auglýsir forlagið einnig eftir nýjum handritum, og upprennandi skáld og spekingar geta skilað handritum fyrir nýjar seríur Meðgönguljóða.
Hægt er að horfa á El Dorado eftir Birki Blæ í spilaranum hér ofar í fréttinni og á sjónvarpsvef Vísis.