BA-ritgerð um mömmuhópa Guðrún Ansnes skrifar 8. maí 2015 15:30 Regína með ritgerðina góðu. Hún veltir nú fyrir sér hvernig konur hafi hreinlega komist af áður en Fésbókarinnar naut við. Vísir/Valli
Í nútímasamfélagi er svo komið að konur hafi vart fengið staðfestingu á þungun áður en þær hafa sótt um aðgang að tilheyrandi bumbuhóp. Hópurinn umbreytist svo í mömmuhóp í takt við tímann. Samkvæmt rannsókn Regínu Jónsdóttur til BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands hafa þessir hópar töluvert mikið vægi í tilveru ungra, einhleypra mæðra á Íslandi í dag. „Helsta stuðningsnetið er samtvinnað úr foreldrum og aðstandendum, en þessir mömmuhópar á Fésbókinni eru nú farnir að sækja í sig veðrið og verða sífellt veigameiri,“ segir Regína. Hópurinn sem Regína skoðaði í rannsókn sinni, var samsettur úr einstæðum mæðrum undir tuttugu og fimm ára aldri. „Sumar sögðu svona hóp hafa hreinlega bjargað geðheilsunni og hefði á tímabili endurspeglað allt þeirra félagslíf,“ segir Regína, en niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að auki fram á að félagslegur stuðningur við hópinn skipti gríðarlegu máli. Í mömmuhópunum skapist lítið, læst samfélag þar sem konurnar leyfi sér, mismikið þó, að opna sig innan hópsins og undir formerkjum trausts. „Þó voru þær meðvitaðar um að þarna væru samankomnar ólíkar konur úr öllum áttum, sem erfitt væri að treysta kannski,“ segir Regína og bætir við að það geti haft mikla þýðingu fyrir konur sem kannski eigi ekki sterkt félagslegt net. Regína segir einangrun þó óhjákvæmilegan fylgifisk þess háttar nútímasamskipta, „Þegar þær treysta alfarið á þennan hóp og leita lítið eða ekkert út fyrir hann, getur það haft andstæð áhrif. Að auki geta glansmyndir samfélagsmiðlanna haft þau áhrif á konurnar að þær upplifi sig á neikvæðan hátt í samanburðinum við hinar, og þannig verði sjálfsmyndirnar fyrir hnjaski,“ bendir Regína á. Segir Regína hugmyndina upphaflega hafa komið vegna þess að hún var í sömu sporum, en hún á árs gamla dóttur. „Fyrst til að byrja með eftir fæðingu barnsins, er félagslífið mikið bara þarna,“ segir hún og bætir við að sér hafi þótt áhugavert að skoða þetta nánar og hafi þá komið í ljós að ekki var fordæmi fyrir svona rannsókn hérlendis. „Þetta er svo merkilegt nefnilega, og fullt af spurningum sem skjóta upp kollinum. Hvernig fóru mæður til dæmis að áður en þessir hópar komu til?,“ spyr Regína og skellir upp úr í lokin.
Mest lesið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Lífið Í vandræðum í Bláa lóninu Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Lífið „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Fleiri fréttir „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Sjá meira