Lífið

Einar Ágúst eignast son

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Tónlistarmaður Einar Ágúst Víðisson er alsæll með nýfæddann son sinn.
Tónlistarmaður Einar Ágúst Víðisson er alsæll með nýfæddann son sinn. Mynd/Skjáskot
Tónlistarmaðurinn Einar Ágúst Víðisson og kærasta hans, Andrea Edwinsdóttir, eignuðust í gær son. Unga piltinum og móður heilsast vel. „Ég er alveg í skýjunum, þetta er alveg yndislegt,“ segir Einar Ágúst alsæll um fæðingu sonarins.

Einar Ágúst átti fyrir tvo syni, þá Ásmund Goða 12 ára og Loga Þór 4 ára. Hann segir að nafnið á nýjasta fjölskyldumeðlimnum sé ekki alveg ákveðið.

„Það eru komnar nokkrar góðar hugmyndir. Ég hef reynt að hafa það til siðs að hafa seinna nafnið tengt goðafræði,“ bætir Einar Ágúst við. Andrea og Einar Ágúst hafa verið saman í um tvö ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×