Lífið

Skoðuðu twerk og Beyoncé fyrir verkið #PRIVATEPUSSY

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, lektor og fagstjóri samtímadansbrautar Listaháskóla Íslands, er annar danshöfunda #PRIVATEPUSSY.
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, lektor og fagstjóri samtímadansbrautar Listaháskóla Íslands, er annar danshöfunda #PRIVATEPUSSY. Vísir/Ernir
„Þetta er svakalega viðeigandi og current á okkar tíma. Free the Nipple nýbúið að vera í umræðunni og Free the Pussy að koma upp á yfirborðið og við erum nákvæmlega að fjalla um þessi málefni,“ segir Sveinbjörg Þórhallsdóttir, lektor og fagstjóri samtímadansbrautar Listaháskóla Íslands.

Hún, ásamt Steinunni Ketilsdóttur, er danshöfundur samtímadansverksins #PRIVATEPUSSY, annarrar sýningar útskriftarnema af samtímadansbraut LHÍ, en útskriftarhópurinn setur einnig upp sýninguna A life In Muscle eftir Tony Vezich.

„Þetta er rosalega sterkur hópur samtímadansara, sterkar konur,“ segir Sveinbjörg stolt en þetta er jafnframt þriðja verkið sem Sveinbjörg og Steinunn vinna saman að og fjallar um baráttumál konunnar.

#PRIVATEPUSSY spyr spurninga um birtingarmynd konunnar og kvenlíkamans í nútímasamfélagi og fjallar um stöðu og birtingarmynd hennar í poppmenningu. Free the Nipple-byltingin átti sér stað á Twitter á sama tíma og verkið var í vinnslu en þar birtu íslenskar konur myndir af brjóstum sínum meðal annars til þess að mótmæla kynvæðingu brjósta.

„Free the Nipple kemur bara inn í mitt tímabil hjá okkur þar sem við eru að fjalla um þessi málefni. Við vorum að gera senu þar sem þær voru allar berar að ofan og þetta átti svona vel við,“ segir hún og bætir við að það hafi enn frekar styrkt að verkið væri í takt við tímann.



Búningarnir eru eftirtektaverðir og líkja eftir vöðvabyggingu líkamans.
Talsverð hugmynda- og rannsóknarvinna liggur að baki dansverkum og er engin undantekning þar á í #PRIVATEPUSSY, en Sveinbjörg segir þær Steinunni og dansarana í verkinu meðal annars hafa lagst yfir poppmenningu og skoðað þekktustu poppstjörnur samtímans nánar.

„Við tókum til dæmis Beyoncé og allar þessar poppdrottningar. Rannsökuðum hreyfingarnar og tilvitnanirnar,“ segir hún og bætir við: „Þær hafa svo ofboðslega mótandi áhrif á samfélagið sitt og þau geta verið misgóð og misvísandi skilaboð,“ segir Sveinbjörg, en hún segir meðal annars mikið hafa verið unnið með twerk og aðrar hreyfingar sem áberandi eru í tónlistarmyndböndum. 

Tónlistin í sýningunni er eftir Áskel Harðarson og er það útskriftarverk hans úr tónsmíðum. Ókeypis er inn á báðar sýningarnar en panta þarf miða á midisvidslist@lhi.is. Verkin verða sýnd í Gamla bíói á fimmtudag og föstudag klukkan fimm og átta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×