World Class hjónin á bakvið Ungfrú Ísland: Fanney með yfirumsjón Guðrún Ansnes skrifar 13. maí 2015 00:01 Fanney hefur nóg að gera við að miðla reynslu sinni til þeirra stúlkna sem koma til með að feta í fótspor hennar og taka þátt í keppninni. „
Við munum gera hlutina öðruvísi í ár og einblína á undirbúning fyrir stóru keppnirnar, Miss World og Miss Universe, góðgerðarstörfin og þess háttar,“ segir Fanney Ingvarsdóttir, fyrrum ungfrú Ísland sem hefur nú tekið að sér að hafa yfirumsjón með keppninni. Fanney telur keppnina í ár verða hina glæsilegustu og að mikill metnaður verði lagður í undirbúning keppenda, en í þetta skiptið verði farið að danskri og sænskri fyrirmynd, þar sem úrslitakvöldið er meira í tískusýningarstíl og tónlistaratriðum fremur en dansatriðum keppenda eins og hefur tíðkast. Að auki verði brugðið út af vananum og keppnin haldin í Hörpu, en ekki á Broadway líkt og í fjöldamörg ár.GagnrýnisraddirnarAðspurð um gagnrýni sem keppnir sem þessar hafa sætt undanfarin ár segist Fanney vissulega skilja sumt sem þar hefur komið fram. „En fólk er fljótt að dæma og tala um eitthvað sem það kannski þekkir ekki endilega. Ég hef sjálf farið í gegnum þetta ferli, sé ekki eftir neinu, og sé alls ekkert slæmt við að taka þátt í svona keppnum,“ útskýrir hún, og bendir á, máli sínu til rökstuðnings, að vinsælt sé að keppa í allskyns bikiní-fitness hér á landi, og það minnst tvisvar á ári. Segir Fanney jafnframt að ástæða þess að keppnin hafi fallið niður í fyrra hafi einungis verið vegna eigendaskipta á keppninni, en ekki áhugaleysis. En þau Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, kennd við World Class, keyptu keppnina í fyrra og standa nú á bak við herlegheitin. Mun skráning hefjast í lok vikunnar og geta þá stúlkur á aldrinum 18-24 ára skráð sig til leiks.Ekki nóg að vera falleg Stundum er talað um að fegurð sé afstæð, en geta allir verið með í svona keppnum? „Þetta snýst ekki bara um að vera fallegust, heldur skiptir margt máli, persónuleiki, útgeislun og hvort viðkomandi er fær um að höndla verkefnin sem koma til með að taka við. Að svo stöddu höfum við ekki sett niður neinar reglur um útlit,“ útskýrir hún. Varðandi framboð keppenda segist Fanney ekki hafa áhyggjur. „Ég er búin að senda á nokkrar sem mér líst vel á til að sjá hvernig stemningin er og hef fengið virkilega góð viðbrögð,“ svarar Fanney, spurð um hvort eftirspurnin sé mikil. „En ef engin sækir svo um, þá verður engin keppni, það segir sig sjálft,“ bætir hún lauflétt við í lokin.
Mest lesið Í vandræðum í Bláa lóninu Lífið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin mín“ Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Lífið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Bíó og sjónvarp „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Fleiri fréttir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin mín“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Sjá meira