Lífið

Unnur steig á svið í New York

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Unnur steig á svið í New York
Unnur steig á svið í New York Vísir/Valli
Söngkonan Unnur Eggertsdóttir, sem margir kannast við sem Sollu stirðu úr Latabæ, deildi gleðilegum status á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Þar greindi hún frá því að um kvöldið myndi hún í fyrsta skipti stíga á svið sem söngkona í New York á kabarettbar á Times Square.

Unnur flutti til borgarinnar í september á síðasta ári þar sem hún stundar leiklistarnám við skólann The American Academy of Dramatic Arts í borginni.

Unnur sagðist spennt og stressuð fyrir stóru stundinni og að hún óttaðist mest að láta lífið úr stressi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×