Lífið

Victoria sendi Geri kjól

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Komst ekki Victoria Beckham komst ekki í brúðkaup Geri Halliwell en sendi henni kjól og blóm í tilefni dagsins.
Komst ekki Victoria Beckham komst ekki í brúðkaup Geri Halliwell en sendi henni kjól og blóm í tilefni dagsins. nordicphotos/Getty
Fyrrverandi kryddpían Geri Halliwell giftist Christian Horner síðastliðinn föstudag.

Vinkona hennar og fyrrverandi hljómsveitarfélagi, Victoria Beckham, komst ekki í brúðkaupið en bætti það upp með því að senda Halliwell kjól úr væntanlegri línu sinni til þess að klæðast í brúðkaupsferðinni, en Beckham hefur undanfarin ár starfað sem fatahönnuður.

Að auki sendi hún hjónunum risastóra blómaskreytingu og einlægt kort með hamingjuóskum.

Mel B var einnig boðið í brúðkaupið og átti þriggja ára dóttir hennar, Madison, að vera brúðarmær en Mel B hringdi með nokkurra klukkustunda fyrirvara og afboðaði sig vegna anna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×