Lífið

Ekki ólétt, bara að eldast

Lady Gaga biður fólk að slaka aðeins á, hún sé bara að verða eldri.
Lady Gaga biður fólk að slaka aðeins á, hún sé bara að verða eldri. fréttablaðið/nordicphotos
Söngkonan Lady Gaga sprakk á limminu um daginn, en hún gafst upp á þeim sögusögnum sem flogið hafa fjöllunum hærra upp á síðkastið um að hún sé ófrísk.

Tók Gaga sig til og lét aðdáendur sína heyra það á tónleikum í vikunni, þar sem hún sagði þeim að hún væri einfaldlega að eldast. Meint öldrun hefði þau áhrif á líkama hennar, að sumir héldu hana konu eigi einsamla. Kleip hún í lærin á sér máli sínu til rökstuðnings og benti á að hún ætti nú aðeins eitt ár í að verða þrítug.

Segja fjölmiðlar vestanhafs að hún hafi svarað óléttuorðrómi fullum hálsi, en verður víst hver að dæma fyrir sig hvort þetta hafi verið gott útspil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×