Lífið

Einkatónleikarnir eru orðnir þrennir talsins

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Grísalappalísa hefur löngum verið talin ein líflegasta tónleikasveit landsins.
Hljómsveitin Grísalappalísa hefur löngum verið talin ein líflegasta tónleikasveit landsins.
Hljómsveitin Grísalappalísa hefur undanfarnar vikur staðið fyrir söfnun fyrir vínylútgáfu á breiðskífunum sínum tveimur Ali og Rökrétt framhald á vefsíðunni Karolinafund. Þeir sem leggja sveitinni lið með fjárframlögum geta meðal annars keypt einkatónleika með sveitinni.

„Það hafa þrír aðilar keypt einkatónleika. Þetta leggst frábærlega í mig. Þetta verður allt í garðveislum á höfuðborgarsvæðinu og allt í ágúst. Þetta verður ágætis túr,“ segir Gunnar Ragnarsson, söngvari hljómsveitarinnar

Verð fyrir einkatónleikana eru 500 evrur eða um 77 þúsund krónur, sveitin setti þó hámark á einkatónleika og getur heildarfjöldi tónleika aðeins verið fimm. „Þetta er náttúrulega gjafverð fyrir sjö manna rokkmaskínu. Það eru tveir aðilar sem geta enn náð okkur. Garðveislutúrinn í ágúst kemur í staðinn fyrir hringinn eins og síðasta sumar.“

Auk platnanna tveggja ætlar sveitin einnig að gefa út tvöfalda tónleikaplötu á vínyl.

Hljómsveitin Grísalappalísa og Megas að trylla lýðinn.
Söfnunin hefur gengið vel og er meðlimir sveitarinnar ákaflega þakklátir. „Þetta hefur gengið mjög vel, erum búnir að safna 104 prósentum af því sem við ætluðum okkar, sem er rúm milljón.“

Í söfnuninni getur fólk einnig keypt koverlag, eða valið sér lag sem sveitin tekur upp fyrir kaupandann. Ragnar, faðir Gunnars, hefur keypt koverlag. „Tveir aðilar hafa keypt koverlag og pabbi er annar þeirra. Ég er bæði hræddur og spenntur yfir því að að sjá hvað hann hefur valið. Hann er allavega mikill Shakiru-aðdáandi. Við bíðum spenntir eftir því verkefni að taka koverlögin, enda búnir að gefa út tvær koverlagasjötommur „Grísalappalísa syngur“ bæði Megas og Stuðmenn.“

Grísalappalísa verður á ferð og flugi í sumar og kemur meðal annars fram á ATP Iceland, Lunga og Eistnaflugi ásamt því að standa að ýmsu tónleikahaldi sjálfir. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×