Leynigesturinn var gestasöngvari árið 1975 Gunnar Leó Pálsson skrifar 5. júní 2015 10:00 Alls verða sextán manns á sviðinu í Hörpu þegar mest lætur á tónleikunum. Vísir/Ernir
Lokahnykkur langs og strangs æfingaferlis fyrir umfangsmestu tónleika Stuðmanna lauk í gær. Stuðmenn koma fram á tvennum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld og einum á morgun og eru tónleikarnir tileinkaðir plötunni Sumar á Sýrlandi. „Þetta verða sögulegir tónleikar í margþættum skilningi. Við erum að flytja okkar fyrstu breiðskífu og því fylgja sérstakar tilfinningar,“ segir Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon um tónleikana. „Ekki spillir fyrir að æfa í Sýrlandi fyrir Sumar á Sýrlandi tónleika,“ bætir Jakob við og hlær.Mikið stuð í mönnum á æfingu í gær.vísir/ernirPlatan Sumar á Sýrlandi kom út árið 1975 og meðal gestasöngvara á plötunni voru Long John Baldry, Steinka Bjarna og Björgvin Halldórsson. „Við verðum með einn leynigest á tónleikunum og sá einstaklingur var gestasöngvari á plötunni. Ekki er þó víst hvort hann er í hópi lífs eða liðinna. Meira get ég því miður ekki sagt að svo stöddu,“ segir Jakob Frímann og glottir, spurður í gestasöngvarana. Alls verða sextán manns á sviðinu í einu á tónleikunum þegar mest lætur. Fyrir tónleikana hefur sveitin endurgert lagið Sumar á Sýrlandi og syngur Ágústa Eva Erlendsdóttir þessa nýju útgáfu en lagið er komið í nýjan og fagran sparibúning. Þá mun Dúddi rótari, sem er ómissandi þar sem Stuðmenn koma saman, ekki láta sig vanta í Hörpu að þessu sinni.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Lífið Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Lífið Fleiri fréttir Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Sjá meira