Skálað stórt í Bjórgarðinum Gunnar Leó Pálsson skrifar 5. júní 2015 09:30 Loftur H. Loftsson, rekstrarstjóri Bjórgarðsins, og Arngrímur Sigurðsson listamaður standa hér við veglegt verkið. vísir/vilhelm
Einstakt listaverk hefur verið vígt á nýjum veitinga- og skemmtistað sem ber nafnið Bjórgarðurinn og verður opnaður í næstu viku. Um er að ræða olíumálverk af tveimur einstaklingum að skála. „Þetta er allavega stærsta skál á Íslandi og örugglega þótt víðar væri leitað,“ segir Arngrímur Sigurðsson, 27 ára gamall listamaður, sem hannaði og teiknaði verkið. Hann segist ekki kalla það neinu sérstöku nafni heldur tali það sínu máli. „Þeir báðu um að fá skál þannig að ég leysti það á þennan hátt.“ Verkið er 3,5 x 2,5 metrar að stærð og tók sinn tíma að mála það. „Ég hef verið í svona tvær vikur með þetta. Það var líka mikil undirbúningsvinna,“ bætir Arngrímur við. Loftur H. Loftsson, rekstrarstjóri Bjórgarðsins, er einkar ánægður með verkið. „Þetta er rosalega fallegt og vandað verk. Ég er ótrúlega ánægður með það,“ segir Loftur. Bjórgarðurinn, sem staðsettur er í Fosshótelinu í Þórunnartúni 1, kemur til með að verða samkomustaður bjóráhugamanna. Í Bjórgarðinum eru 22 kranar og tveir nítrókranar.„Við erum að para saman mat og bjór, við dekrum ekki bara við þá sem eru lengra komnir í bjórmenningunni heldur erum við hérna líka fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í þessum spennandi heim bjórs og matar. Hér geta allir fundið sinn stíl af bjór,“ segir Loftur. Í Bjórgarðinum eru 22 kranar og tveir nítrókranar. „Nítrókraninn er ekki einungis notaður fyrir Guinness, heldur er að vakna áhugi á að setja aðra bjóra í „nítró meðferð“. Það er mýkri áferð á bjórnum sem kemur úr nítródælunni og öðruvísi bragð. Humlar tónast örlítið niður og maltið stígur fram í bjórnum,“ útskýrir Loftur. Hann segir staðinn ætla að vinna með íslenskum brugghúsum, eins og Borg og Ölvisholti, en einnig bjóða upp á framandi bjór sem hingað til hefur ekki verið í boði annars staðar. „Við er að fá þurrhumlaðan Skjálfta frá Ölvisholti, það verður svakalegt,“ bætir Loftur við.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Lífið Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Lífið Fleiri fréttir Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Sjá meira