Lífið

Sam Smith syngur á ný

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Söngvarinn mun koma fram í Ástralíu í nóvember og desember.
Söngvarinn mun koma fram í Ástralíu í nóvember og desember. Vísir/Getty
Söngvarinn Sam Smith fór í skurðaðgerð á raddböndunum í síðastliðnum mánuði.

Í kjölfar aðgerðarinnar þurfti söngvarinn, sem hefur átt góðu gengi að fagna, að aflýsa tónleikaferðalagi í Ástralíu auk tónleika í Japan og Filippseyjum.

Smith var að vonum miður sín en birti á dögunum mynd á Instagram með mynd af Aríel úr Disney-teiknimyndinni ástsælu, Litla hafmeyjan, þar sem Aríel fékk rödd. Undir myndinni birti Smith texta þar sem hann sagðist geta talað á ný.

Söngvarinn mun halda tónleika í Ástralíu í nóvember og desember og sagðist í yfirlýsingu alsæll yfir að geta komið fram á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×