Vinabönd sem aðstoða hvort annað Gunnar Leó Pálsson skrifar 6. júní 2015 10:00 Hljómsveitin Lily of the Valley hefur stækkað hægt og rólega frá stofnun árið 2013. Mikil spilamennska er fram undan hjá sveitinni í dag. vísir/ernir
Hljómsveitin Lily of the Valley hefur myndað sterkt vinasamband við hljómsveitina Adore Repel sem er frá Leeds og ætla sveitirnar að nýta hvor aðra til góðs. „Við eigum sameiginlegan vin sem er Leedsari. Við kynntumst honum fyrir fjórum eða fimm árum. Síðan þá hef ég farið tvisvar út og hann hefur komið hingað nokkrum sinnum og er mikill tónlistarunnandi,“ segir Logi Marr, gítarleikari og söngvari hljómsveitarinnar Lily of the Valley, um upphaf vinskaparins. Umræddi félaginn frá Leeds vildi ólmur kynna Loga og félaga fyrir félögum sínum í Adore Repel. „Þetta eru félagar hans sem eru í bandinu, alveg frábærir strákar, og við ákváðum að gera samning sem er þannig að við bókuðum tónleika fyrir þá á Íslandi og síðan ætla þeir að launa okkur greiðann og bóka handa okkur tónleika úti. Þetta er sniðugt fyrir meðalstór bönd myndi ég segja, því maður veit ekki alveg hvernig maður á að snúa sér við svona bókanir úti og svona,“ segir Logi alsæll með vinskapinn. Lily of the Valley var stofnuð fyrir Airwaves-tónlistarhátíðina árið 2013 og hefur vaxið og dafnað talsvert síðan þá. „Við byrjuðum bara ég, Tinna og Mímir. Hrafnkell var búinn að vera mikið með okkur en svo bættum við slagverksleikara og bassaleikara við, þeim Guðmundi Þór og Leó Inga, þannig að við erum orðin massív,“ bætir Logi við hlær. Sveitin hefur þó ekki enn farið út en stefnir á brottför innan skamms. „Við höfum ekki náð að fara út, við vorum samt eiginlega bókuð út í febrúar en sökum þess að við erum á fullu í að fjölga okkar, þurftum við að fresta útlandaferðum í smá tíma. Tinna varð til dæmis ólétt og svona,“ segir Logi, en bætir við að fjölgunin sé í raun nauðsynleg fyrir hljómsveitina. „Við erum að safna í rípleisment, ég er kominn með rípleisment, Tinna og einn annar í viðbót. Þá getum við líka lifað á erfingjunum,“ segir Logi og hlær dátt. Hljómsveitin gaf út sitt fyrsta smáskífulag af væntanlegri plötu þann 13. maí og ber lagið titilinn Wildflower. Lagið er þó ekki það eina sem kom út þann daginn. „Tinna átti barn sama dag þannig að þetta var mikill útgáfudagur.“ Vinaböndin ætla að koma fram á sameiginlegum tónleikum í kvöld á Gauknum klukkan 22.00 en þetta eru jafnframt fyrstu tónleikar Tinnu eftir barnsburð. „Við ætlum að byrja daginn í Te og kaffi í Austurstræti klukkan 14.00. Þar ætlum við að taka órafmagnað sett og róa taugarnar eftir Colour Run-ið. Í kvöld ætlum við svo að rokka, þá verður kassagítarinn eftir heima og rafmagnsgítarinn rifinn upp,“ segir Logi.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Lífið Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Lífið Fleiri fréttir Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Sjá meira