Sjáðu breytingarnar á Keflavíkurflugvelli 12. júní 2015 12:00 Verslun Fríhafnarinnar hefur verið tekin í gegn. Verslunin er bæði stærri og með öðru sniði en áður. Vísir/Stefán
Umtalsverðar breytingar hafa átt sér stað á Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu. Ljósmyndari fréttastofunnar fór á dögunum suður með sjó og fangaði hina nýju flugstöðvarbyggingu en hana má sjá hér að ofan. Frá árinu 1958 hefur fjöldi farþega sem fer um flugstöðina 90 faldast, farið úr 44 þúsundum á ári í rétt tæpar fjórar milljónir árið 2014. Þá er ráð fyrir að farþegar flugstöðvarinnar verði fjórar og hálf milljón í ár og munu 20 flugfélög fljúga um völlinn í sumar. Farþegaaukning hefur verið mest síðastliðin sex ár þar sem rúmlega hundrað prósenta aukning hefur orðið á fjölda farþega síðan árið 2009. Þessi hraða aukning hefur átt sér stað án sérstakra breytinga á flugstöðinni eða vellinum. Vegna þessarar miklu farþegaaukningar var ráðist í fyrrnefndar breytingar. Nú þegar eru hafnar stækkunarframkvæmdir bæði á komusal og suðurhluta flugstöðvarinnar, samtals um 6.000 fermetrar. Ný þróunaráætlun til ársins 2040 er í mótun og mun hún taka á öllu skipulagssvæði flugvallarins og nærumhverfi hans. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir að á þessum 25 árum muni stærð flugstöðvarinnar tvöföldast og ný norður-suður flugbraut lögð vestan við flugvöllinn. Einnig hefur verið unnið að miklum breytingum á verslunar- og veitingasvæði flugstöðvarinnar sem ljúka mun formlega í dag. Svæðið hefur verið stækkað og veitingastöðum hefur verið fjölgað þannig að flugstöðin geti þjónað þeim aukna fjölda farþega sem búist er við á næstu árum. Með breytingunum mun úrval og framboð vöru og veitinga í flugstöðinni aukast sem skilar flugvellinum auknum leigutekjum.Hér má sjá hvernig grunnflötur flugstöðvarinnar lítur út núna.
Mest lesið Ástin laðar að: Lúpínugallabuxur markmið næsta árs Atvinnulíf 1,4 milljarða sparnaður af uppsögnum 140 starfsmanna í maí og júní Viðskipti innlent „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Fleiri fréttir 1,4 milljarða sparnaður af uppsögnum 140 starfsmanna í maí og júní „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Sjá meira