Erlent

Ævilangt fangelsi fyrir mútur og leka

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Zhou Yongkang er sagður hafa lekið ríkisleyndarmálum og fjölskylda hans hafi tekið við mútum í stórum stíl.
Zhou Yongkang er sagður hafa lekið ríkisleyndarmálum og fjölskylda hans hafi tekið við mútum í stórum stíl. nordicphotos/AFP
Zhou Yongkang, fyrrverandi yfirmaður kínversku öryggislögreglunnar, hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir mútuþægni, misnotkun valda sinna og að hafa vísvitandi ljóstrað upp um ríkisleyndarmál.

Hann var einnig sviptur stjórnmálaréttindum sínum til æviloka og persónulegar eignir hans voru gerðar upptækar.

Zhou er 73 ára gamall og var einn valdamesti maður landsins þangað til hann hætti störfum árið 2012. Hann hafði ekki sést opinberlega í þrjú ár þegar hann birtist skyndilega á sjónvarpsskjánum, orðinn gráhærður, og játaði brot sín möglunarlaust.

„Ég braut að staðaldri bæði lög og flokksreglur, og raunveruleiki afbrota minna hefur valdið bæði flokknum og þjóðinni alvarlegu tjóni,“ sagði hann í réttarsal, að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua. „Þeir sem tengjast málinu og mútuðu fjölskyldu minni voru í raun að sækjast eftir þeim völdum sem ég hafði, og mér ber að taka á mig höfuðábyrgðina.“

Kínversk stjórnvöld sendu frá sér yfirlýsingu í tilefni dómsins, þar sem þau segja hann sanna að þau vinni af kappi að því að útrýma spillingu í landinu.

„Enginn stendur ofar lögunum. Þetta mál sýnir að í landinu okkar er réttarríki og að flokkurinn okkar er staðráðinn í að útrýma spillingu,“ segir í yfirlýsingunni.

Í frásögn breska útvarpsins BBC segir að fáir Kínverjar gráti það þótt Zhou hljóti þungan dóm. Hins vegar snúist dómsmálið frekar um pólitík en peninga: „Kínversk stjórnmál eru enn að takast á við afleiðingarnar af hinni harðvítugu valdabaráttu sem færði Xi Jinping og nýjum hópi ráðamanna völdin,“ segir Carrie Gracie, fréttaritari BBC í Kína.

Réttarhöldin sjálf stóðu aðeins yfir í fáeinar vikur og voru haldin bak við luktar dyr, þannig að sjónvarpsútsendingin frá dómsuppkvaðningunni í gær kom almenningi á óvart.

Kínverska fréttastofan Xinhua segir að Zhou hafi hlotið dóm fyrir að þiggja 130 milljón júan í mútur, en 129 milljónum hafi sonur hans og eiginkona tekið á móti. Hann sjálfur hafi ekki frétt af því fyrr en eftir á. Þessi upphæð samsvarar ríflega 2,7 milljörðum króna.

Þá er hann sagður hafa lekið ríkisleyndarmálum til manns að nafni Cao Yongzheng, sem ekki hafi haft neina heimild til að sjá leyniskjölin. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×