Lífið

Eftirlíking á geimnum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hrönn og Þorgerður vinna í fyrsta sinn saman að sameiginlegri sýningu sem verður opnuð á morgun í Kunstschlager.
Hrönn og Þorgerður vinna í fyrsta sinn saman að sameiginlegri sýningu sem verður opnuð á morgun í Kunstschlager. Vísir/Vilhelm
Myndlistarkonurnar Hrönn Gunnarsdóttir og Þorgerður Þórhallsdóttir leiða hesta sína í fyrsta skipti saman á sýningunni WHITELESS sem verður opnuð í listamannarekna galleríinu Kunstschlager á morgun.

Hrönn og Þorgerður sýna vídeó- og hljóðverk á sýningunni en hugmyndin að henni kviknaði í gegnum Skype.

„Ég var í Malmö og Hrönn hér á Íslandi. Mikið af vinnunni fyrir sýninguna fór því fram á Skype sem er mjög fyndið,“ segir Þorgerður og bætir við að þrátt fyrir fjarlægðina hafi undirbúningurinn gengið vel.

Í verkunum takast þær á við eftirlíkingar á náttúrunni, manngerða orku og hið efnislega í staðleysunni eða tóminu. „Hrönn hefur mikinn áhuga á hlutum sem tengjast geimnum þannig að mörg verkin fór svolítið að snúastu um eftirlíkingar af honum,“ segir Þorgerður.

Hugmyndin kviknaði út frá vídeóverki sem Þorgerður gerði fyrir hálfgerða tilviljun í skólanum en hún stundar mastersnám í myndlist í listaháskólanum í Malmö. „Það var eitthvað spennandi við það, eitthvert ljós í myrkri. Ég sýndi Hrönn það og út frá því ákváðum við að þetta vídeó setti svolítið þemað í sýningunni.“

Á sýningunni verða tíu vídeóverk og eitt hljóðverk sem þær spila hvert á fætur öðru í samspili en nafn sýningarinnar tengist orðinu weightless og eiga verkin það sameiginlegt að vera án þyngdar, ójarðbundin og lifa sjálfstæðu lífi í öðrum heimi.

Þrátt fyrir að þetta sé þeirra fyrsta sameiginlega sýning hafa Hrönn og Þorgerður þekkst lengi. „Við vorum saman í Listaháskólanum og í skiptinámi í Berlín á sama tíma þannig að við erum farnar að þekkja vinnu hvor annarrar mjög vel en höfum aldrei leitt hesta okkar saman fyrr en nú.“

WHITELESS er önnur sýningin í sýningaröð Kunstschlager sem er í D-sal Hafnarhússins en galleríið opnaði í húsakynnunum í mars síðastliðnum eftir að hafa verið starfrækt á Rauðarárstíg frá árinu 2012. Sýningin verður opnuð klukkan 15.00 á morgun og stendur yfir til 28. þessa mánaðar og er aðgangur í Kunstschlager stofu ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×