Lífið

Seacrest kominn á fast

Seacrest hefur verið um borð í American Idol-skútunni frá byrjun, síðan 2002.
Seacrest hefur verið um borð í American Idol-skútunni frá byrjun, síðan 2002.
American Idol-spaðinn Ryan Seacrest er kominn með nýja dömu upp á arminn, en hann hefur verið nokkuð framtakssamur í leit sinni að ástinni og á sæmilegan en nokkuð einsleitan feril að baki, þéttsetinn fyrirsætum og leikkonum.

Sú heppna er Hilary Cruz, sem þekktust er fyrir að bera nafnbótina Ungfrú Bandaríkin í flokki táninga árið 2007.

Segja gárungar þau hafa verið saman nú um nokkurt skeið, en parið hefur ekki stigið fram opinberlega, en hefur þó sést laumast saman í rómantíska kvöldverði hingað og þangað í Hollywood.

Kynntust Seacrest og Cruz í fertugsafmæli þess fyrrnefnda, en Cruz er sjálf tuttugu og sex ára gömul.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×